Þjónustuleiðir

Það skiptir okkur hjá Metatron máli að veita góða þjónustu við viðskiptavini okkar og erum við alltaf að vinna að því að gera enn betur á því sviði. Það lengir líftíma gervigrasvalla, fyrirbyggir óþarfa tjón og bætir upplifun notenda þegar nauðsynlegu viðhaldi gervigrasvalla er sinnt reglulega. Metatron býður viðskiptavinum, frá og með janúar 2024, upp á reglulega þjónustu á gervigrasvöllum í áskrift. Hægt er að velja um þrjár þjónustuleiðir og Metatron heldur utan um þjónustubók fyrir vellina og auðveldar þannig utanumhald fyrir vallarstjóra.

Þjónustur sem við bjóðum uppá í þjónustuleiðum okkar:
-Djúphreinsun: Tekur óhreindindi úr vellinum og hreinsar völlinn vel. Nauðsynlegt að gera reglulega.
Mýking: Með tímanum þjappast innfylliefni vallarins, við mýkingu er innfylliefnum lyft upp og við það mýkist völlurinn í notkun.
Létt ástandsskoðun: Farið er yfir völlinn og kannað hvort þörf sé á viðhaldi/viðgerðum og hugsanleg viðbrögð ráðin út frá niðurstöðum.
-Innfyllingamæling: Rétt magn innfyllingarefna tryggir hámarks eiginleika vallarins. Innfyllingin er mæld og hugsanleg viðbrögð ráðin út frá niðurstöðum.
-Vorhreinsun í kringum völl: Malbik (allt að 2m) í kringum völlinn er hreinsað léttilega.
Sótthreinsun: Gervigrasvöllurinn sótthreinsaður í heild sinni með viðurkenndum efnum.
Þjónustubók: Þjónustubókin er staðfesting á því sem hefur verið framkvæmt.

Til að fá verðskrá hafið samaband við info@metatron.is

Skilmálar:
-Verð miðast við völl í fullri stærð.
-Miðað við stórhöfuðborgarsvæðið.
-Akstur bætist við við lengri vegalendir.
-Áskrift er uppsegjanleg með 3 mán.fyrirvara.
-Verð miðast við hefðbundnar viðhaldsaðgerðir.
-Viðbótaraðgerðir eða úrræði ekki innifaldar.
-Metatron hefur samband þegar fer að koma að heimsókn og fundinn er tími sem hentar.
-Mikilvægt er að völlurinn sé tómur á meðan viðhaldsaðgerðum stendur.